Fyrsti sigur Justin Rose | Sjötta silfur Mickelson Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. júní 2013 23:38 Justin Rose fagnar á Merion í dag. Nordicphotos/AFP
Englendingurinn Justin Rose stóð uppi sem sigurvegari á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Leik lauk fyrir stundu. Rose spilaði lokahringinn á Merion-vellinum í Pennsylvaníu-fylki á 70 höggum eða á pari vallarins. Mickelson þurfti fugl á síðustu holunni til þess að knýja fram bráðabana. Hinum örvhenta tókst það ekki, fékk skolla á holunni og vann Rose því sigur með tveggja högga mun. Jason Day var einnig á þremur höggum yfir pari. Rose hefur spilað afar stöðugt golf á mótinu. Hann spilaði fyrsta hringinn á einu höggi yfir pari og þann næsta á einu undir. Hann var aftur á einu yfir pari í gær og spilaði lokahringinn, sem fyrr segir á pari. Þetta er fyrsti sigur Justin Rose á risamóti í golfi. Mickelson þarf hins vegar að bíta í það súra epli að hafna í öðru sæti á mótinu í sjötta skiptið á ferlinum. Tiger Woods hafnaði í 32. sæti á þrettán höggum yfir pari.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira