Íslenskir kylfingar á ferðinni í Finnlandi 25. júní 2013 19:15 Íslenski hópurinn. mynd/gsí
Tólf keppendur frá Íslandi leika á Finnish International Junior Championship mótinu sem fram fer dagana 26.-28. júní á Cooke vellinum í Vierumaki í Finnlandi. Um er að ræða stúlkna og drengjamót í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri. Alls taka 102 Finnar og 54 útlendingar þátt, en Ísland er með flesta keppendur utan Finnana. Einnig koma keppendur frá Þýskalandi, Svíþjóð, Belgíu, Danmörku, Tyrklandi og víðar. Eftirfarandi keppendur frá Íslandi taka þátt: Birgir Björn Magnússon GK, Gísli Sveinbergsson GK, Fannar Ingi Steingrímsson GHG, Henning Darri Þórðarson GK, Kristján Benedikt Sveinsson GHD, Ragnhildur Kristinsdóttir GR, Birta Dís Jónsdóttir GHD, Gerður Ragnarsdóttir GR, Ólöf María Einarsdóttir GHD, Óðinn Þór Ríkharðsson GKG,Kristófer Orri Þórðarson GKG, Arnór Snær Guðmundsson GHD. Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari og Heiðar Davíð Bragason þjálfari norðurlandsúrvals GSÍ, eru fararstjórar og þjálfarar. „Aðstæður eru mjög góðar, golfvöllurinn er virkilega góður og flatirnar mun hraðari en við þekkjum heima. Einnig er mikill hiti og sól. Þetta mót er vel skipulagt af hálfu finnska sambandsins og stefnir í skemmtilega keppni," sagði Úlfar. "Að taka þátt í svona móti er mjög mikilvægt fyrir okkar yngstu kylfinga, að geta reynt sig við góðar og krefjandi aðstæður og við sterka erlenda keppendur. Nokkur þeirra eru að taka þátt í sínu fyrsta verkefni erlendis og fyrir þau er þetta fyrst fremst til að öðlast reynslu, meðan aðrir eru þegar komnir með nokkra reynslu á erlendum vettvangi og setja markið hátt." Í fyrra náði Fannar Ingi 3. sæti í 14 ára og yngri flokknum og Birgir Björn og Gísli höfnuðu meðal 10 efstu.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira