Birgir Leifur fékk tvo skramba og hrundi niður listann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2013 14:28 Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG og Íslandsmeistari í höggleik árið 2013, náði ekki að fylgja eftir frábærum fyrsta hring á Open Blue Green Côtes d'Armor Bretagne golfmótinu í Frakklandi en hann þurfi átta fleiri högg til að klára annan hringinn í dag. Tveir skrambar fóru illa með Íslandsmeistarann á seinni níu og Birgir Leifur hrundi niður listann eftir að hafa verið í toppbaráttunni eftir fyrstu 18 holurnar. Birgir Leifur lék annan hringinn á 73 höggum eða þremur höggum yfir pari. Hann hefur þegar dottið niður um 19 sæti en það gæti breyst því margir kylfingar eiga eftir að klára annan hringinn. Birgir Leifur var í öðru sæti eftir fyrstu átján holurnar þar sem hann náði meðal annars sex fuglum. Hann var reyndar með fjóra fugla á öðrum hringnum en 10. og 14. holan fóru illa með hann. Birgir tapaði tveimur höggum á báðum þessum holum. Ítalinn Andrea Pavan er að stinga af enn hann lék á fimm undir pari í dag og sex undir pari í gær. Hann er því á ellefu höggum undir pari eftir fyrstu 36 holurnar.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira