Sara skoraði þegar hún og Þóra urðu sænskir meistarar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2013 14:12 Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir urðu í dag sænskir meistarar í annað skiptið á þremur árum eftir að LdB Malmö vann 2-0 heimasigur á Umeå í næstsíðustu umferð sænsku kvennadeildarinnar. Malmö þurfti bara eitt stig til þess að tryggja sér titilinn en liðið er með sex stiga forskot á Tyresö þegar aðeins ein umferð er eftir. Sara Björk skoraði annað mark Malmö í leiknum á 33. mínútu en það fyrra skoraði hollenska landsliðskonan Manon Melis á 20. mínútu leiksins. Sara skoraði markið sitt eftir sendingu frá Linu Nilsson. Þóra og Sara léku allan leikinn. Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, lék allan tímann í vörn Umeå-liðsins en þetta var næstsíðasti leikur hennar á ferlinum. Þetta var tíundi sigurleikur Malmö í röð eftir að deildin byrjaði aftur eftir EM-fríið og Þóra hefur haldið marki sínu hreinu í átta af þessum tíu leikjum. Sara Björk var að skora sitt áttunda deildarmark á tímabilinu og er hún fjórði markahæsti leikmaður liðsins á eftir þeim Önju Mittag, Ramonu Bachmann og Manon Melis. Malmö vann titilinn einnig árið 2011 og missti síðan af honum til Tyresö á dramatískan hátt í fyrra þegar liðin mættust í óopinberum úrslitaleik í lokaumferðinni.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Sjá meira