Segir Jóhönnu þurfa að iðrast og snúa frá villu síns vegar Frosti Logason skrifar 28. október 2013 10:48 Snorri í Betel segist ekki hissa á því að Biblían kalli lífsmáta Jóhönnu Sigurðardóttur synd.
Snorri Óskarsson, eða Snorri í Betel, tjáði sig um nýútkomna bók Jónínu Leósdóttur í stöðu uppfærslu á Facebook um helgina. Í bókinni fjallar Jónína um ástarsamband hennar og Jóhönnu Sigurðardóttur og hvernig þær fóru leynt með það á fyrstu árum sambandsins. „Fróðlegt. Gefast eiginmanni, eignast börn. Yfirgefa eiginmann og fara villu vegar. Er nema von að Biblían kalli þennan lífsmáta synd?“ segir Snorri um þann kafla bókarinnar er segir frá hvernig þær Jónína og Jóhanna þurftu báðar að ganga í gegnum erfiða skilnaði á sínum tíma áður en þær gátu verið saman. Þá bendir hann á að konan hafi verið sköpuð fyrireiginmanninn, maðurinn fyrir eiginkonuna og að hjónabandið væri heit um ævarandi bindingu.Að lokum kemur Snorri með tilmæli til Jóhönnu og allra þeirra sem standa í hennar sporum: „Gjörið iðrun og snúið yður og þá munu endurlífgunartímar frá Drottni koma yfir ykkur.Amen!“
Harmageddon Mest lesið Agent Fresco á toppi árslista X977 Harmageddon Harmageddon fer til Færeyja Harmageddon Það er von Harmageddon Hver græðir á íslenskri tónlist? Harmageddon Strangheiðarlegur og hafður fyrir rangri sök Harmageddon Sannleikurinn: ASÍ - Launþegar 14:17 Harmageddon Ofsóttur af Boko Haram - óvelkominn á Íslandi Harmageddon Sannleikurinn: Ef forsætisráðherra sagði satt verður hann tafarlaust að segja af sér Harmageddon Ofskynjunarsveppir gegn þunglyndi Harmageddon Notuðu Twitter aðgang Mike Tyson til að kynna nýja plötu. Harmageddon