Jakob Frímann óskar Busta Rhymes Guðs blessunar Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 6. nóvember 2013 06:45 Busta Rhymes (t.v.) notaði stef úr lagi Jakobs Frímanns í sitt eigið lag, án þess að biðja leyfis.
Tónlistarmaðurinn Jakob Frímann Magnússon er lítið spenntur fyrir málaferlum gegn bandaríska rapparanum Busta Rhymes, sem notaði stef úr gömlu lagi Jakobs, Burlesque in Barcelona, í lag sitt, Doin' it Again, í fyrra. „Það er nú lítið að frétta af þessu,“ segir Jakob í samtali við Vísi. „Ég er búinn að tilkynna þetta til minna umboðsaðila í Bandaríkjunum og þeir eru að skoða þetta mál. Jakob segir að líklega sé það helsta í stöðunni að efna til málaferla gegn rapparanum, sem leitaði ekki samþykkis Jakobs fyrir notkun stefsins. „En ég er seinþreyttur til leiðinda,“ segir Jakob, en í samtali við Fréttablaðið í maí sagði hann að bæði væri flókið og dýrt að leita réttar síns í málum sem þessu. „En ég óska honum Guðs blessunar og vona að lagabúturinn hafi getað fært honum örlitla peninga, eða að minnsta kosti eilitla lífshamingju,“ segir Jakob um rapparann.
Mest lesið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Lífið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Nýr Rambo fundinn Bíó og sjónvarp Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Lífið Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira