Gagnrýni

Dönsuðu við framandi tóna

Freyr Bjarnason skrifar
Omar Souleyman töfraði fram skemmtilega stemmningu.
Omar Souleyman töfraði fram skemmtilega stemmningu. Fréttablaðið/Arnþór
Omar Souleyman

Iceland Airwaves-hátíðin

Harpa-silfurberg



Sýrlenski tónlistarmaðurinn Omar Souleyman er líklega þekktastur hér á landi fyrir að hafa starfað með Björk Guðmundsdóttur á hennar síðustu plötu, Biophilia. Björk var einmitt á meðal áhorfenda á tónleikunum en lét vera að stíga á svið með vini sínum.

Souleyman er goðsögn í heimalandi sínu en undanfarin ár hefur hann verið duglegur við að spila utan heimalands síns við góðar undirtektir. Kappinn mætti á sviðið klæddur á arabískan máta, með köflóttan klút á höfðinu og með sólgleraugu. Með honum var hljómborðs- og taktspilari og tókst þeim félögum að ná upp mjög góðri stemningu í salnum með arabískri danstónlist sinni.

Tónleikagestir dilluðu sér við þessa framandi tóna á meðan Souleyman sjálfur var yfirvegunin uppmáluð og hreyfði hendurnar aðeins stöku sinnum til að fá fólk til að klappa með.

Tónlistin sjálf heillaði mig samt ekki mikið. Manni leið dálítið eins og sama lagið hafi gengið í gengum alla tónleikana, með örlitlum blæbrigðamun. Kannski spilaði þar inn í lítil þekking á þessari tónlistarstefnu.

Engu að síður fær Souleyman stóran plús fyrir stemninguna sem hann skapaði og verður tónleikanna vafalítið minnst fyrir þær sakir.

Niðurstaða: Souleyman bjó til flotta stemningu í Silfurbergi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.