Tíska og hönnun

Vörur sem börnin geta erft

Gunnar M. Pétursson opnar vefverslunina Skekk innan skamms. Þar fást handunnar vörur úr náttúrulegum efnivið. Mynd/Stefán
Gunnar M. Pétursson opnar vefverslunina Skekk innan skamms. Þar fást handunnar vörur úr náttúrulegum efnivið. Mynd/Stefán
"Í Reykjavík er fullt af góðum hönnunarverslunum en samt er smá kimi sem vantar inn í," segir Gunnar M. Pétursson myndlistarmaður, sem opnar vefverslunina Skekk innan skamms. Í versluninni fást helst handunnar hönnunarvörur úr náttúrulegum efnivið.

"Ég einblíni á handgerðar vörur úr náttúrulegum efnivið, ég vildi bjóða upp á vöru sem unnin er af vandvirkni og kemur ekki beint af færibandi. Mér er sérstaklega í nöp við það sem kallast "throw away-ismi" og vil sjálfur helst kaupa eigulegar vörur sem börnin mín gætu erft," útskýrir Gunnar. Flestar vörurnar fann hann á netinu og segist hann aðeins selja vörur sem hann er sjálfur hrifinn af.

Nafn vefverslunarinnar er viðurnefni sem festist við Gunnar fyrir mörgum árum síðan. Nafnið er röng stafsetning orðsins "skegg". "Við erum margir Gunnararnir og Skekk var notað til að aðgreina mig frá hinum og festist svo á endanum."

Sjá má myndir af vörunum á Facebook-síðu Skekks. "Síðan er fyrst og fremst til að láta fólk vita hvaða vörur verða fáanlegar. Ég hef bara fengið jákvæð viðbrögð, þeir neikvæðu hafa greinilega haldið sínum skoðunum fyrir sig," segir Gunnar.- sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.