Gagnrýni

Útvarpsvænni Sin Fang

Trausti Júlíusson skrifar
Tónlist. Sin Fang. Flowers. Morr Music.



Flowers er þriðja plata Sin Fang í fullri lengd en að auki hafa komið út nokkrar stuttskífur, m.a. EP-platan Half Dreams sem kom út í fyrra. Sin Fang er sólóverkefni Sindra úr Seabear. Hann samdi sjálfur lög og texta á nýju plötunni en fékk Alex Somers til að stjórna upptökum. Alex hefur sem kunnugt er tekið upp efni með Jónsa, Sigur Rós og Pascal Pinon.

Sindri er mikill hljóðverssnillingur. Á fyrri Sin Fang plötunum skapaði hann magnaðan hljóðheim með þéttofnum og hugmyndaríkum útsetningum. Hann heldur uppteknum hætti á nýju plötunni. Mörg þau einkenni sem Sindri þróaði á fyrri plötunum eru enn til staðar, t.d. flottar raddútsetningar, skemmtilegar taktpælingar og litríkar hljóðmyndir. Samt er nýja platan töluvert frábrugðin þeim fyrri. Á Flowers eru lagasmíðarnar sjálfar sterkari. Lögin eru melódískari og meira grípandi. Það háði fyrri plötunum svolítið, sérstaklega Summer Echoes, að lagasmíðarnar voru ekki nógu markvissar.

Það eru mörg frábær lög á Flowers. Upphafslagið, Young Boys, er t.d. smellur sem ætti að svínvirka bæði í útvarpi og á tónleikum. Sunbeam er annað grípandi lag og See Ribs er ekta indírokksmellur með flottum "syngja-með"- kafla. Lögin hafa hvert og eitt sín einkenni. Lokalagið Weird Heart skiptir til dæmis um takt eftir fyrstu einu og hálfu mínútuna. Lagið Feel See er í sérstöku uppáhaldi hjá mér, en í því er útsetningin einstaklega frjó, full af óvæntum smáatriðum. Það er erfitt að gera sér alveg grein fyrir áhrifum Alex Somers á plötunni, en mér finnst lagið Catcher t.d. hafa einkenni sem eigna má honum. Það er eitthvað við það sem minnir á Jónsa-plötuna. Það verður að segja það Alex til hróss að þær plötur sem hann hefur komið að undanfarið eru allar góðar.

Á heildina litið er Flowers frábær plata. Að mínu mati besta plata Sin Fang til þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.