Hjónin rífast stundum á æfingum 26. febrúar 2013 18:00 Hljómsveitin My Sweet Baklava. Frá vinstri: Þórður, Sveinn Rúnar, Smári og Valgerður. „
Það er voðalega gaman að hafa sameiginlegt áhugamál, það er rosalega gott fyrir öll pör," segir Þórður Sævarsson, gítarleikari hljómsveitarinnar My Sweet Baklava frá Akranesi. Hann og eiginkona hans, Valgerður Jónsdóttir, söngkona og lagahöfundur, eru forsprakkar My Sweet Baklava sem hefur gefið út sína fyrstu plötu, Drops of Sound. Aðrir meðlimir eru bassaleikarinn Sveinn Rúnar Grímarsson og trommarinn Smári Þorsteinsson. Platan var tekin upp á Akranesi á síðasta ári og hefur að geyma ellefu lög. Spurður hvort þau hjónakornin rífist aldrei á hljómsveitaræfingum segir Þórður að það komi fyrir. „En þá lúffar maður bara, það er ekkert öðruvísi," segir hann og hlær. „Það er gaman að gera eitthvað saman annað en að taka til og elda eitthvað gott." Hljómsveitin var stofnuð að frumkvæði Valgerðar en þau hjónin hafa starfað saman í tónlistinni í yfir fimmtán ár og eiga slatta af lögum og textum. My Sweet Baklava spilar melódíska popp- og rokktónlist og hefur þegar náð einu lagi á vinsældarlista Rásar 2, My Decisions. Næstu tónleikar hennar verða á Landnámssetrinu í Borgarnesi á laugardagskvöld og hvetur Þórður Borgnesinga og nærsveitamenn til að láta sjá sig.- fb
Tónlist Mest lesið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira