Óður til leiksins og forvitninnar Bergsteinn Sigurðsson skrifar 5. júlí 2013 11:00 Sara Riel Hefur einkum látið að sér kveða í götulist en kemur sér nú fyrir í Listasafni Íslands. „
Það má segja að náttúrugripasafnið sé brunnur til að sækja myndefni í,“ segir myndlistarkonan Sara Riel um sýningu sína, Memento Mori, sem opnuð verður í Listasafni Íslands í kvöld. Á sýningunni sýnir Sara ólík verk af ýmsum gerðum, – prentverk, silkiþrykk, vídeóverk, ljósmyndir, klippiverk, skúlptúra, málverk – sem eiga það þó sameiginlegt að vera unnin út frá flokkunarfræðum náttúrunnar. Sýningin á sér þriggja ára aðdraganda, allt frá því þegar Sara fór að rýna í hvers konar myndlist fólk hefði á veggjum hjá sér og tók eftir að náttúran eða tilvísanir í hana voru langvinsælasta stefið. „Ég er líka leiðsögumaður og var oft spurð hvar náttúrugripasafn okkar Íslendinga væri og þurfti að svara sem var að það væri ekki til. Jú, við eigum til muni á það en þeir velkjast einhvern veginn á milli Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðisafns Íslands. Það fannst mér bjóða upp á ákveðið samfélagslegt samtal: af hverju eiga Íslendingar ekki almennilegt náttúrugripasafn?“ Í kjölfarið lagðist Sara í rannsóknir og fór á flakk ásamt Davíð Erni Halldórssyni myndlistarmanni, þar sem þau skoðuðu lista- og náttúrugripasöfn í London, Berlín og París. „Við vildum sjá hvernig þetta er útfært; hvernig er andrúmsloftið og svo framvegis. Veiðisafnið í París var mikill innblástur því þar taka þeir öll þessi element sem eru í boði og leika sér með framsetninguna en allt í viktoríönskum stíl.“ Í framhaldinu fór Sara að stúdera náttúruvísindin og ákvað að vinna út frá ríkjaflokkum náttúrunnar. „Menn greinir að vísu á hversu mörg ríki náttúran skiptist í. Ég tók fimm fyrir og allur innblástur sýningarinnar kemur úr dýraríkinu, svepparíkinu, steinaríkinu, ríki einfrumunga og svo fjölfrumunga.“ Sara segir leit og forvitni hafa ráðið útfærslunni á hverju verki fyrir sig; hún hafi leitast við að brjóta ýmis fyrirbæri niður og raðað þeim upp á nýtt. Nafn sýningarinnar Memento Mori merkir „minnstu þess að þú ert dauðlegur“. „Þetta miðar að því að minna fólk á að njóta tilverunnar meðan tími er til. Horfa, skoða, taka í sundur, setja saman á annan hátt og vera forvitinn.“Verkið Sporfugl er meðal verka á sýningunni Memento Mori.Sara hefur hingað til einkum látið að sér kveða í veggjalist eða graffi, stundum nefnd götulist. Spurð hvort sýningin í Listasafni Íslands boði á einhvern hátt fráhvarf eða kúvendingu frá götulistinni svarar hún afdráttarlaust neitandi. „Ég held áfram að vinna að götulistinni og er að gera röð veggmynda út frá þessu þema víðsvegar um bæinn; til dæmis verkið Fönix við Nýlendugötu, sem er unnið út frá dýraríkinu, og Svepp við Hverfisgötu sem sækir í svepparíkið.“ Sara segist hafa lengi haft fyrirvara á „listastofnunum“ og hafa dregist að götulist því hún hafi verið laus við skrifræði, formlegheit og háalvarlegt yfirbragð. Hún segir þetta þó ekki þvælast lengur fyrir sér en segir ákveðinn mun á því að sýna á formlegu listasafni og á strætum úti. „Í fyrsta lagi myndi ég ekki gera götulist á listasafni; það væri tilgangslaust að mála á veggina því þetta er allt annað umhverfi. Í öðru lagi þá er sambandið við umhverfið allt öðruvísi. Þegar maður vinnur að veggjalist hikar fólk ekki við að koma upp að manni þegar maður er vinna og spyrja út í hitt og þetta. Þá verður til raunverulegt og milliliðalaust samtal. Á safni verður fólk hins vegar passívara og finnst það kannski ekki hafa forsendur til að spyrja út í verkin, ekki vita nóg. Mér finnst þessi mörk ekki skipta máli og vona að fólk verði forvitið og ræðið um verkin mín á Listasafninu og þau sem ég mála á veggi.“ Memento Mori stendur til 25. ágúst.
Menning Tengdar fréttir Framþróun í veggjalistaverkum borgarinnar Mikil þróun hefur verið í veggjalist, sem sumir kalla reyndar veggjakrot, á höfuðborgarsvæðinu undanfarna mánuði að sögn myndlistamannsins Söru Riel sem á mörg af þekktstu verknum sem prýða höfuðborgina. Vinnu sína og efni í verkin hefur hún oftast gefið og fengið leyfi frá eigendum húsanna til að setja þau upp enda væri víst ekki annað hægt því mörg þeirra tók mjög langan tíma að vinna að og undirbúa. 1. júlí 2013 19:09 Mest lesið Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Menning „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Lífið Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Lífið Mortal Kombat-stjarna látin Lífið Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti Lífið Kveður fasteignir fyrir kroppa Lífið Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Lífið „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Bíó og sjónvarp Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ Lífið Chanel og Snorri eiga von á syni Lífið Fleiri fréttir Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Frumsýning á Vísi: Skoppa og Skrítla bjóða krökkunum í jólapartý Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Krafa um betri ensku en íslensku reyndust mistök Magnús nýr formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur „Erfiðasti skóli sem ég hef farið í“ Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Sjá meira
Framþróun í veggjalistaverkum borgarinnar Mikil þróun hefur verið í veggjalist, sem sumir kalla reyndar veggjakrot, á höfuðborgarsvæðinu undanfarna mánuði að sögn myndlistamannsins Söru Riel sem á mörg af þekktstu verknum sem prýða höfuðborgina. Vinnu sína og efni í verkin hefur hún oftast gefið og fengið leyfi frá eigendum húsanna til að setja þau upp enda væri víst ekki annað hægt því mörg þeirra tók mjög langan tíma að vinna að og undirbúa. 1. júlí 2013 19:09