Tíska og hönnun

Handverkið lifir í Hring eftir Hring

Marín Manda skrifar
Steinunn Vala Sigfúsdóttir
Steinunn Vala Sigfúsdóttir Mynd/Björg Vigfúsdóttir
Steinunn Vala Sigfúsdóttir byrjaði í skartgripahönnun á mjög óvenjulegan hátt þegar hún gerði leirhring í Listaháskólanum. Hringurinn var verkefni sem átti að endurspegla hana sjálfa en áður en hún vissi af var hringurinn farinn að vekja athygli og fólk stoppaði hana úti á götu til að skoða.

Fiskarnir eru mjög vinsælir.
„Ég stóð á tímamótum en greip tækifærið og ákvað strax að búa til alvöru vörumerki úr þessu. Í dag er ég í samstarfi við gullsmiði og annað handverksfólk á Íslandi; húsgagnasmiður smíðar slaufurnar, leirlistarkona gerir fiskana og leirinn rúllum við sjálfar. 

Steinunn Vala Sigfúsdóttir að vinna.
Einn af mínum drifkröftum er einmitt að halda lífi í handbragði og handverki sem mér finnst ótrúlega mikilvægt. Hjarta fyrirtækisins er í raun þannig að stundum er óljóst hvort við séum að búa til vöru eða lítið listaverk,“ segir Steinunn og bætir við: „Okkar draumur er að vera atvinnuskapandi og við erum það þegar margir koma að einni vöru.“

Svona verða hálsmenin til í Hring eftir Hring.
Ljósmyndirnar eru eftir Aldísi Pálsdóttur sem myndaði fallega myndaseríu á vinnustofu Hring eftir Hring. Heimasíða Aldísar er hér








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.