„Brúðuloftið er nýtt leikhús sem Bernd Ogrodnik hefur fengið til umráða inni í Þjóðleikhúsinu,“ útskýrir Ágústa Skúladóttir leikstjóri spurð hvað Brúðuloftið sé. Þar var um síðustu helgi frumsýnd brúðusýning Bernds, Aladdín, sem Ágústa leikstýrir. „Aladdín er formleg opnunarsýning Brúðuloftsins. Bernd semur handritið og tónlistina og hannar og smíðar leikmyndina, auk þess að búa til brúðurnar, stjórna þeim og vera sögumaður.“
Karl Ágúst Úlfsson á líka bæði þýtt og frumsamið efni í sýningunni og átta eðalleikarar ljá brúðunum raddir sínar. Sagan fylgir sögunni úr 1001 nótt, án alls Disney-flúrs, að sögn Ágústu. „Við erum trú upprunalegu sögunni,“ segir Ágústa. „Aladdín á til dæmis móður í þessari útgáfu en ekki apa. Andinn er einnig kvenkyns hjá okkur, þannig að við höfum aðeins rétt hallann á kvenhlutverkunum.“

Sýningin er sögð höfða til aldurshópsins milli fjögurra og hundrað ára og Ágústa segir fullorðna fólkið skemmta sér alveg jafn vel og börnin. „Fólk kemur út alveg í skýjunum eftir að hafa lifað sig inn í þetta ótrúlega ævintýri,“ segir hún.
Sýningar verða tvisvar á hverjum laugardegi fram eftir nóvember. Ágústa vill leggja áherslu á að sýningarfjöldinn sé takmarkaður og því ekki eftir neinu að bíða með að drífa sig að upplifa ævintýrið.