Ljóðarútan verður á ferðinni í kvöld 31. október 2013 12:00 Leiðsögukonan Sigurlín Bjarney Gísladóttir skáld verður allsráðandi í ljóðarútunni.Fréttablaðið/GVA
Lokaviðburður Lestrarhátíðar í ár fer fram í ljóðarútu sem keyrir um í borgarmyrkrinu í kvöld. Ljóðin lögðu af stað í ferðalag um borgina þann 1. október þegar Lestrarhátíð hófst og því vel við hæfi að ljúka mánuðinum á ljóðrænum rúnti með einvalaliði skálda. Ljóðarútan fer frá Hörpu klukkan 20 og tekur ferðin um eina og hálfa klukkustund. Sigurlín Bjarney Gísladóttir, skáld og leiðsögukona, fer með gesti um upplýsta borgina í kvöldmyrkrinu og skáldin stíga um borð um stund þar til þau hverfa aftur út í næturmyrkrið. Meðal skáldanna eru Bjarki Karlsson, Bragi Ólafsson, Gerður Kristný, Heiða Eiríks, Kári Tulinius, Sindri Freysson, Valgerður Þóroddsdóttir og Þórdís Gísladóttir. Ferðinni lýkur við Hörpu klukkan 21.30 þar sem ljóðskáld frá fyrri tíð stígur um borð og biður gesti um að nefna sig. Sætafjöldi er takmarkaður og er áhugasömum bent á að nauðsynlegt er að bóka far með rútunni með því að senda póst á netfangið bokmenntaborgin@reykjavik.is.
Menning Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira