Tíska og hönnun

Tækifæriskort með yndislegum uppskriftum

Marín Manda skrifar
Helga Valdís Árnadóttir
Helga Valdís Árnadóttir
Grafíski hönnuðurinn Helga Valdís Árnadóttir er hugmyndasmiðurinn og hönnuðurinn á bak við kortin á Facebook-síðunni Kanilkort. Helga Valdís útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2004 og starfaði á auglýsingastofum áður en hún varð sjálfstætt starfandi hönnuður árið 2011. Kanilkortin byggja á uppskriftum sem hafa verið í miklu uppáhaldi meðal fjölskyldu hennar og vina í gegnum tíðina en hver uppskrift á sína sögu og minningu.

Kortin fást bæði sem póstkort og letterpress-prentuð jólakort. Kortin eru tilvalin sem brúðkaupskort, innflutningskort eða til að setja í ramma og hengja upp á vegg. Kortin eru meðal annars með uppskriftum af amerískum pönnukökum, hjónabandssælu, laufabrauði og Söru Bernharðs-kökum. Hægt er að versla kortin á facebook síðunni, ljonshjarta.com eða Fiðrildinu Faxafeni. 

Kanilkortin með uppskriftunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.