Lyktin af greni, kanil og mandarínum segir nefinu að jólin séu fram undan. Skemmtileg og ódýr leið til þess að heimilið ilmi hátíðlega er að búa til jólablöndu í pott sem þú hitar upp aftur og aftur og jólalegur ilmur dreifist um heimilið og vekur góðar minningar og stemningu.
Einnig er hægt að setja það sem til þarf í krukku eða fallegan poka ásamt leiðbeiningum og gefa sem gjöf.
Blandaðu öllu saman í lítinn pott og helltu vatni yfir svo að það fljóti yfir. Stilltu helluna á lágan hita og leyfðu blöndunni að malla og þá mun ilmurinn dreifast um heimilið.
Svona blanda dugar í viku og er hægt að hita upp aftur og aftur, en muna þarf að bæta vatni í blönduna í hvert skipti.
Appelsínu- og trönuberjailmur
1 appelsína, skorin í þunnar sneiðar
½ bolli af ferskum trönuberjum
3 kanilstangir
1 matskeið af heilum negul
Kryddaður eplailmur
1 epli, skorin í sneiðar
5 kanilstangir
2 matskeiðar af heilum negul
2 matskeiðar af nýmöluðu múskati
appelsínubörkur eftir smekk
