Ólafur Björn ætlar að vera sjóðandi heitur á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2014 23:17 Ólafur Björn Loftsson. Mynd/GVA
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, komst í gegn niðurskurðinn á móti á NGA mótaröðinni í Orlando í dag en hann er í 16. sæti á þessu móti á vegum West Orange Country Club. Ólafur er átta höggum á eftir efsta manni fyrir lokahringinn en hann hefur leikið tvo fyrstu hringina á fjórum höggum undir pari. Ólafur Björn lék annan hringinn á 70 höggum eða einu höggi undir pari. „Ég er býsna sáttur við mörg atriði í mínum leik en ég er enn aðeins að púsla hlutunum saman. Púttin og vippin voru flott í dag, púttstrokan er í góðu standi og mér líður vel yfir vippunum," skrifaði Ólafur Björn inn á Fésbókarsíðu sína í kvöld. Ólafur Björn er bjartsýnn fyrir lokahringinn á morgun. „Lokahringurinn er á morgun, ég á rástíma kl. 7:45 en þá er spáð 6°C og með vindkælingu er það á við 2°C. Spurning um að taka teppið með út á völlinn í fyrramálið því ég ætla mér að verða sjóðandi heitur," skrifaði Ólafur Björn á fésbókarsíðu sína.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira