Ekki gleyma hinum "krakkavænu" ánum! Karl Lúðvíksson skrifar 15. janúar 2014 17:56 Mynd: www.hreggnasi.is
Það styttist í að það komi í ljós hvaða daga hver félagsmaður SVFR fær úthlutaða en mesta spennan er þó yfirleitt í kringum Elliðaárnar og þá helst hvort maður hafi fengið þar dag. Það sækja fleiri um en komast að á hverju einasta ári og það hefur verið rætt meðal sumra félagsmanna hvort Elliðaárnar eigi ekki að vera fyrir félagsmenn eldri en 67 ára og svo börn yngri en 16 ára enda árnar auðveldar, ódýrar og veiðivon góð sem er sérstaklega aðlaðandi þegar á að fara með krakka í veiði. En lukkudísirnar dansa ekki alltaf með manni og ef þú lendir í því að fá ekki dag í Elliðánum en vilt komast í einn dag stutt frá bænum í ódýra veiði með veiðivon vill ég benda á tvo aðra kosti. Brynjudalsá og Korpa. Það má vafalaust finna fleiri til en þessar tvær eru litlar, stuttar, ódýrar og barnvænar svo ég nefni þær hér en á eftir að fjalla um fleiri svæði fram að vori. Brynjudalsá og Korpa/Úlfarsá eru báðar hjá Hreggnasa og eitthvað er um lausar stangir í báðum ánum þó ekki mikið. Veiðivon er góð en báðar árnar eru að skila um eða yfir 200 löxum á ári á sínar tvær stangir sem er fín meðalveiði á stöng. Þær eru báðar komnar í gang í byrjun júlí og veiðin helst nokkuð jöfn með smá toppum allt sumarið. Brynjudalsá er í Hvalfirði og það tekur um 40 mínútur að keyra þangað og flestir leggja af stað klukkan 6:00 úr bænum og eru þá komnir tímanlega áður en veiði hefst. Korpan rennur í gegnum tvo hverfi í Reykjavík, Grafarvog og Grafarholt svo það þarf ekki að gera ráð fyrir miklum akstri. Frekari upplýsingar um leyfi er að finna á www.hreggnasi.is
Stangveiði Mest lesið Eftirminnilegast þegar bróðir minn datt í sjóinn og pabbi á eftir Veiði Stórir fiskar úr Úlfljótsvatni Veiði Sextíu prósent meiri veiði Veiði 99 á land fyrsta daginn í Vatnamótunum Veiði Rólegt við Elliðavatn á fyrsta degi Veiði Margar laxveiðiárnar þegar búnar að toppa síðasta sumar Veiði Veiðiferðirnar eru oft misjafnar Veiði Töluvert af laxi neðst í Leirvogsá Veiði Fín veiði í Eyrarvatni Veiði Elliðavatn búið að vera gjöfult Veiði