Lífið

Bieber laus úr steininum

Vísir/AP
Poppstjarnan Justin Bieber er laus úr haldi lögreglunnar í Miami gegn tryggingu en hann var handtekinn í gær grunaður um akstur undir áhrifum og hraðakstur.

Bieber var staðinn að kappakstri á götum Miami á Lambhorgini sportbíl og þegar lögreglan lét hann blása kom í ljós að hann var undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Hann gekkst við brotum sínum.

Að auki streittist hann á móti við handtökuna og má hann búast við kæru fyrir öll þessi atriði. Hann var fluttur í fangelsi þar sem hann þurfti þó aðeins að dúsa í nokkrar klukkustundir eða uns tryggingafé var lagt fram.

Bieber veifaði til aðdáenda sem höfðu safnast saman fyrir utan fangelsið, þegar honum var sleppt úr haldi.Vísir/AP
Þetta er fyrsta brot barnastjörnunnar og má hann búast við sekt fyrir tiltækið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.