Harmageddon

Norður-Kórea sést varla frá alþjóðlegu geimstöðinni

Andri Þór Sturluson skrifar
Mynd tekin 30. janúar
Mynd tekin 30. janúar NASA
Geimfarar um borð í alþjóðlegu geimstöðinni tóku næturmyndir af Kóreuskaga nýverið sem sýna svo augljóslega hversu vanþróað land Norður-Kórea er.

Borgarljósin er það eina sem við sjáum og ljóst er að Seoul er stórborg og Gunsan frekar lítil í samanburði enda býr meira en helmingur Suður-Kóreubúa í Seoul.

Norður-Kórea er hinsvegar alveg myrk og erfitt að sjá mun á landinu og dimmbláu hafinu. Höfuðborgin Pyongyang lítur út eins og smáeyja þrátt fyrir að þar búa sennilega 3 milljónir manna. Það er erfitt að finna nákvæmari tölur.

Höfuðborg Norður-Kóreu er upplýst eins og smábær í Suður-Kóreu.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.