Ole Einar og Hayley kosin sem fulltrúar íþróttafólksins á ÓL í Sotsjí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2014 13:15 Ole Einar Björndalen og Hayley Wickenheiser. Vísir/Getty
Norðmaðurinn Ole Einar Björndalen (skíðaskotfimi) og Hayley Wickenheiser frá Kanada (íshokkí) voru bæði kosin inn í íþróttamannanefnd Alþjóðaólympíunefndarinnar en það voru keppendur á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í Rússlandi sem völdu þau tvö umfram alla aðra keppendur á leikunum. Þau Björndalen og Wickenheiser verða í nefndinni næstu átta árin en sitja ekki eingöngu í íþróttamannanefndinni heldur eru þau einnig í Alþjóðaólympíunefndinni næstu átta árin. Björndalen fékk 1087 atkvæði en Wickenheiser fékk 758 atkvæði. Þau koma í staðinn fyrir þau Rebecca Scott og Saku Koivu sem voru kosin í nefndina á Vetrarólympíuleikunum í Torinó 2006. 80,87 prósent keppenda á leikunum í Sotsjí tóku þátt í þessari kosningu sem er metþátttaka. 2871 höfðu atkvæðisrétt í kosningunni og gátu þau valið úr níu íþróttamönnum og konum frá níu löndum. Aðeins þeir, sem voru 18 ára eða eldri, höfðu tekið þátt í leikunum í Vancouver 2010 eða Sotsjí 2014 og höfðu aldrei fallið á lyfjaprófi á íþróttaferlinum, gátu fengið tilnefningu. Ole Einar Björndalen varð í gær sigursælasti keppandi á Vetrarólympíuleikum frá upphafi þegar hann varð fyrstur til að vinna þrettán verðlaun á leikunum. Hayley Wickenheiser hefur þrisvar unnið gull með Kanada í íshokkí kvenna á Vetrarólympíuleikum.
Vetrarólympíuleikar 2014 í Sochi Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Heimspekingurinn Winston jós úr viskubrunni sínum Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Leyfði nýliðanum ekki að halda í hefðir Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Sjá meira