Lífið

Fannst sofandi heima hjá Justin Bieber

Ugla Egilsdóttir skrifar
Justin Bieber á marga brjálaða aðdáendur.
Justin Bieber á marga brjálaða aðdáendur.
Lögreglan í Atlanta tók fasta konu sem fannst sofandi á heimili sem Justin Bieber tók á leigu.  Konan er 23ja ára gömul og heitir Quianying Zhao.  Konan sagðist hafa ætlað að mæta í afmælisveislu Justins og gengið inn um ólæstar dyr í mannlaust húsið. Lögreglan fann hana á miðvikudagskvöld.

Justin hélt hinsvegar upp á afmælið sitt annars staðar annan dag. Konan kvaðst vera vinkona Justins, en lögregluna grunar að hún sé bara æstur aðdáandi. Konan á yfir höfði sér ákæru fyrir að fara inn á heimili Justins í leyfisleysi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.