BMW i8 tvinnbíllinn uppseldur út árið Finnur Thorlacius skrifar 13. mars 2014 14:40 BMW i8 tvinnbíllinn. Autoblog
Öll framleiðsla þessa árs á tvinnbílnum BMW i8 er þegar seld og afhending fyrstu BMW i8 bílanna hefst í júní næstkomandi. BMW i8 er sannkallaður tímamótabíll, hann eyðir aðeins 2,1 lítrum á hverja hundrað kílómetra en er samt 362 hestöfl. Vélbúnaður hans samanstendur af 96 kílóvatta rafmótor og 231 hestafla brunavél sem er aðeins þriggja strokka og styðst við forþjöppu. Hann er aðeins 4,4 sekúndur í hundraðið. Allar þessar tölur eru með hreinum ólíkindum og að auki mengar hann aðeins 49g/km. Hámarkshraði hans er takmarkaður við 250 km/klst. BMW i8 er fyrsti framleiðslubíll í heimi sem er með laserljósum, en aðalljós bílsins eru með lasertækni. Þau lýsa eina 600 metra en eru samt 30% sparsamari á orku en LED ljós. Þrátt fyrir að BMW i8 sé nokkuð stór bíll vegur hann aðeins 1.485 kíló. Fyrir alla þessa dýrð þarf þó að borga vel, hann kostar 19,8 milljónir króna í heimalandinu Þýskalandi. Ársframleiðsla i8 er aðeins 1.900 bílar í ár og 5.000 bílar á næsta ári, en sala þessa árs er uppseld. Ennfremur hefur BMW borist 10.000 pantanir í minni tvinnbílinn BMW i3. Automotive News Europe greinir frá.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Þingvallavegi Innlent Ógeðfelldar lýsingar í ákæru á hendur Kristjáni Markúsi Innlent Lögreglan lýsir dauða Hackman og konu hans sem „grunsamlegum“ Erlent Þjónusta fólk sem reykir ópíóíða og vímuefni í ómerktum bíl Innlent Segja Tate bræður á leið til Bandaríkjanna í einkaþotu Erlent Konan er fundin Innlent Segja upp samningum 2.300 félagsmanna sem vinna á hjúkrunarheimilum Innlent Segist nauðbeygður til að gagnrýna Guðrúnu á Facebook fyrst hún svari ekki póstum Innlent Trans hermenn leitaðir uppi og látnir fjúka innan 60 daga Erlent María Heimisdóttir skipuð landlæknir Innlent