Harmageddon

Freysi með Stjána Stuð og Soffíu

Frosti Logason skrifar
Kvikmyndagerðarmaðurinn Frosti Runólfsson rifjar upp nokkur góð móment úr útvarpsþættinum Freysa á X-inu 977 á myndbandavefnum YouTube í dag. 

Freysi var gríðarlega vinsæll útvarpsþáttur á X-inu á fyrri hluta síðasta áratugar en honum stjórnaði að sjálfsögðu Andri Freyr Viðarsson sem nú gerir það gott í þættinum Virkum morgnum á Rás 2

Þá voru stuðboltinn Stjáni Stuð og Soffía Sæta, kærastan hans, tíðir gestir á stöðinni og brölluðu þau þar ýmislegt sem hlustendur höfðu gaman af.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.