Matt Kuchar: Ég vissi að ég ætti þetta inni 21. apríl 2014 20:49 Kuchar með bikarinn í gær. AP/Vísir
Matt Kuchar sigraði á sínu sjöunda móti á PGA mótaröðinni á ferlinum í gær eftir að hafa leikið best allra á RBC Heritage mótinu sem fram fór á Harbour town vellinum í Suður-Karólínufylki. Kuchar hefur verið í mjög góðu formi að undanförnu og hafði verið í baráttu um sigurinn á síðustu þremur mótum á PGA-mótaröðinni. Honum hafði þó ekki tekist að vinna mót á tímabilinu fyrir gæradaginn en hann endaði í fjórða sæti á Texas Open, öðru sæti á Houston Open og í fimmta sæti á Mastersmótinu áður en sigurinn kom loksins í hús í gær. „Ég vissi alveg að ég ætti þetta inni,“ sagði hæstánægður Kuchar við fréttamenn eftir sigurinn í gær en hann lék lokahringinn á 64 höggum eða sjö höggum undir pari. „Ég hef verið að spila svo gott golf að undanförnu að ég vissi að ég átti inni einn sterkan lokahring einhverstaðar, ég fann hann í dag og gæti ekki verið sáttari með afraksturinn. Þessi sigur sannar það að ef maður spilar nógu vel í nógu langan tíma þá er maður verðlaunaður að lokum.“
Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira