Luke Donald leiðir fyrir lokahringinn á RBC Heritage 20. apríl 2014 10:22 Luke Donald var í miklu stuði í gær. AP/Getty
Englendingurinn Luke Donald leiðir fyrir lokahringinn á RBC Heritage mótinu sem fram fer Harbour Town vellinum í Suður-Karólínufylki en Donald er samtals á átta höggum undir pari eftir fyrstu þrjá hringina. Í öðru sæti er John Huh á sex höggum undir pari en fjórir kylfingar deila þriðja sætinu á fimm höggum undir, Jim Furyk, Charl Schwartzel, Nicolas Thompson og Ben Martin. Það verður því spennandi að sjá hvort að Luke Donald tekst að landa sigri í kvöld en þessi fyrrum besti kylfingur heims hefur verið í smá lægð að undanförnu og ekki unnið atvinnumannamót í rúmlega tvö ár. Það ætti að teljast líklegt miðað við hvernig Donald hefur spilað um helgina en hann hefur verið að pútta og vippa óaðfinnanlega, sérstaklega á síðasta hring þar sem hann lék á 66 höggum eða fimm undir pari. Lokahringurinn fer fram í kvöld og hefst bein útsending á Golfstöðinni klukkan 17:00.
Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira