Uppreisn í Pírataskútunni í Kópavogi Samúel Karl Ólason skrifar 9. maí 2014 16:28 Vísir/GVA/Vilhelm
Hópur sjóræningja í Kópavogi stefnir á framboð undir nafni Dögunar, en hópurinn mun vera á móti niðurstöðum prófkjörs flokksins sem haldið var nýverið. Á félagsfundi Pírata í kvöld segja heimildir Vísis að til standi að stjórnin muni leggja fram nýjan lista undir nafni Dögunar og láta velja á milli. „Stjórnin er að vinna að framboði Dögunar og ekki að framboði Pírata í Kópavogi, heldur þvert á móti er hún að leggjast gegn því. Það er þvert á við það sem hún á að gera samkvæmt lögum Pírata. Í þokkabót er hún að gera þetta opinberlega, þau leyna þessu ekki heldur réttlæta það,“ segir Helgi Hrafn Gunnarsson, sem situr á þingi fyrir Pírata. Mikið rót er meðal Pírata vegna málsins og hafa miklar umræður verið um þetta á Facebook síðu sem kallast Pírataspjall. Þar er því haldið fram að stjórnin hafi ekki hafið undirskriftasöfnun fyrir Pírata, en hafi þess í stað safnað undirskriftum fyrir Dögun. Er það sagt vera mikill trúnaðarbrestur. Ingólfur Árni Gunnarsson, sem er efstur á lista Pírata í Kópavogi, segir í samtali við Vísi að niðurstaða prófkjörsins hafi verið skýr og erfitt sé að véfengja hana.Allar fréttir af sveitarstjórnarkosningunum 2014 má nálgast á Kosningavef Vísis, visir.is/kosningar
Kosningar 2014 fréttir Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira