Mercedes Benz C-Class með vél frá Renault Finnur Thorlacius skrifar 15. maí 2014 09:45 Mercedes Benz C-Class verður framleiddur í 4 löndum.
Ein af þeim vélum sem verður í boði í nýjum Mercedes Benz C-Class er frá franska bílaframleiðandanum Renault. Er það lítil dísilvél með 1,6 lítra sprengirými sem bæði mun fást 115 og 136 hestafla og er eyðsla þeirra sérlega lág, eða 3,7 lítrar. Markar þetta skref Mercedes Benz nokkur þáttaskil, en vélar í Mercedes Benz bíla eru alla jafna framleiddar af þeim sjálfum. Auk þessarar vélar verður C-Class einnig í boði sem tvinnbíll, með 2,2 lítra og 204 hestafla dísilvél og 20 kW rafmagnsmótor, en E-Class bíllinn er einnig í boði með þessari drifrás. Eyðsla C-Class svona búinn er aðeins 3,6 lítrar á hverja hundrað kílómetra. Þriðja nýja drifrásin er plug-in-hybrid, eða bíll sem setja má í samband við heimilisrafmagn. Sá bíll verður með 2,0 lítra dísilvél og 50kW rafmótor og er eyðsla hans 3,0 lítrar. Allt eru þetta mjög sparneytnir bílar þrátt fyrir að C-Class sé alls ekki litill bíll. Nýr C-Class hefur stækkað nokkuð, er nú 9,5 cm lengri en forverinn og með 8 cm lengra á milli hjóla. Auk þess hefur C-Class bíllinn hækkað til þaksins og því er hann allur rúmbetri. Stækkun C-Class bílsins er ekki síst til að aðgreina hann frá minni CLA-bíl Mercedes Benz, en ef C-Class hefði ekki stækkað hefði stærð þessara tveggja bíla vera of ámóta. Nýr C-Class er nú smíðaður í 4 löndum og er hann fyrsta bílgerð Mercedes Benz sem smíðaður er í svo mörgum löndum. Smíðastaðirnir eru Bremen í Þýskalandi, Alabama í Bandaríkjunum, East London í S-Afríku og Peking í Kína. Mercedes Benz áætlar að selja 300.000 eintök af C-Class bílnum í heiminum á ári. Helstu samkeppnisbílar C-Class eru Audi A4 og BMW 3-línan.
Mest lesið Dorrit rænd í Lundúnum Innlent Rannsaka mannslát í Kópavogi Innlent Annað sinn sem læknir lýgur um krabbamein: „Þetta mun fara á versta veg“ Innlent Fundurinn afkastamikill en mikið verk fyrir höndum Erlent Hikuðu ekki þegar tækifærið gafst að opna verslun í Grindavík Innlent Þórhildur Sunna mótmælti með Grétu Thunberg Innlent Grunaður um rosalega brotahrinu í aðdraganda hraðbankaþjófnaðarins Innlent Sagði Campbell´s „gjörunninn“ mat fyrir „fátækt fólk“ Erlent Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Innlent Ákærður fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ Innlent