Guðrún Brá og Bjarki efst í Leirunni Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 25. maí 2014 08:00 Guðrún Brá er að spila vel mynd/gsí
Bjarki Pétursson GB er með eins höggs forystu í karlaflokki og Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK er með sömu forystu í kvennaflokki á fyrsta móti Eimskipsmótaraðarinnar í golfi eftir tvo hringi af þremur. Keppt er í Hólmsvelli í Leiru og er óhætt að segja að veðrið hafi sett mark sitt á leik kylfinga. Leiknar voru 36 holur í gær en mótinu lýkur í dag þegar þriðji og síðasti hringurinn verður leikinn. Guðrún Brá lék fyrri hringinn í gær á 8 höggum yfir pari en þann seinni á sex yfir pari og er því samtals á 14 höggum yfir pari. Guðrún Brá er höggi á undan Sunnu Víðisdóttur GR og Karen Guðnadóttur GS. Berglind Björnsdóttir er fjórða á 20 höggum yfir pari. Bjarki lék fyrri hringinn á fimm höggum yfir pari en veðrið var skaplegra síðdegis og skorið betra og þá lék Bjarki völlinn á pari. Ragnar Már Garðarsson GKG og Andri Þór Björnsson GR eru höggi á eftir á sex yfir pari og Haraldur Franklín Magnús er fjórði á sjö yfir pari.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira