Kýs XB eftir að oddviti skipti um dekk fyrir hana Bjarki Ármannsson skrifar 30. maí 2014 22:25 Myndin sem Anna útbjó og setti á Facebook. Mynd/Anna Rós Jensdóttir „
Hann breytti alveg atkvæði mínu,“ segir Anna Rós Jensdóttir, íbúi í Garðabæ, um framtak Einars Karls Birgissonar, oddvita Framsóknarflokksins í bænum. Anna Rós segist ekki hafa hugsað sér að kjósa Framsóknarflokkinn fyrr en Einar brá sér í líki bifvélavirkja og skipti um dekk á bílnum hennar fyrr í dag. „Við vorum að labba um með Framsóknarkaffi, að dreifa því í hús í hverfinu,“ segir Einar Karl um tildrög dekkjaskiptanna. „Við sáum svo þessa konu í bílnum sínum fyrir utan eina blokkina. Hún situr þarna í öngum sínum og við bönkuðum bara á gluggann og buðum hjálp.“ Einar gerði sér svo lítið fyrir og skipti um dekk hjá Önnu, sem var þá á leið að hringja á aðstoð. Hún festi atvikið á mynd og deildi með vinum sínum á Facebook, svo að góðverkið hlyti örugglega verðskuldaða athygli. „Hann er í einu orði sagt yndislegur, þessi drengur,“ segir Anna um frambjóðandann og kveðst ætla að greiða atkvæði með Framsóknarflokknum á morgun. „Maður leggur ýmislegt á sig á síðustu metrunum í kosningabaráttu,“ segir Einar Karl léttur. „Og það er alltaf gott að geta gert góðverk.“
Kosningar 2014 fréttir Kosningar 2014 Höfuðborgarsvæðið Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira