Ofurhlaup á Esjunni Rikka skrifar 20. júní 2014 08:45 Ofurhlauparar á Esjunni Mynd/Mt.Esja Ultra
Mt. Esja Ultra, verður haldið í þriðja sinn laugardaginn 21. júní. Það verður eitthvað í boði fyrir alla en í ár verður boðið upp á tvær, fimm og ellefu ferðir upp að Steini. Esjuhlaup hafa notið gífurlegra vinsælda síðustu ár og var Mt. Esja Ultra valið hlaup ársins 2012 og utanvegahlaup ársins 2013 á Hlaup.is. Þrjár vegalengdir eru í boði en þær eru:Tvær ferðir - 14 km og 1200 m hækkunFimm ferðir - 35 km og 3000 m hækkunXtreme ellefu ferðir - 77 km og 6600 m hækkun Eigendur Esjustofu styðja vel við bakið á hlaupinu með frábærri aðstöðu og býður keppendum í lengri vegalengdum upp á heitar veitingar. TRI verslun styrkir hlaupið rausnarlega og Cintamani gefur glæsileg verðlaun fyrir þá sem ljúka lengstu vegalengdinni. Aðrir styrktaraðilar hlaupsins eru Compressport, Brooks og Landsbankinn. Hlaupahaldarar búast við mikilli stemningu í fjallinu líkt fyrri ár enda landinn orðinn duglegur að stunda fjallgöngur og þá sérstaklega á Esjunni. Esjustofa verður að sjálfsögðu opin allan daginn og mun vertinn, Pjetur Árnason, sjá til þess að enginn fari svangur eða þyrstur heim að hlaupi loknu.
Heilsa Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið