Tíska og hönnun

Óþekkjanleg í auglýsingu fyrir Givenchy

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Kendall Jenner, hálfsystir Kardashian-systranna, situr fyrir í nýrri auglýsingaherferð fyrir tískurisann Givenchy.

Þetta er fyrsta hátískuauglýsingaherferðin sem Kendall tekur þátt í og er hún nánast óþekkjanleg á myndunum eins og sést á myndinni hér fyrir ofan þar sem Kendall er lengst til vinstri.

Ljósmyndaratvíeykið Mert Alas og Marcus Piggott tóku myndirnar en aðrar fyrirsætur í herferðinni eru Jamie Bouchert, Mariacarla Boscono og Peter Brant II.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.