Kristján Þór lagði Harald að velli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. júní 2014 10:56 Kristján Þór Einarsson. Vísir/Stefán
Kristján Þór Einarsson er kominn í lokaúrslitin á Íslandsmótinu í holukeppni sem fer nú fram á Hvaleyrarvelli. Kristján Þór hefur verið í miklu stuði um helgina og lagði í morgun hinn öfluga Harald Franklín Magnús, sem komst í 8-manna úrslit á Opna breska áhugamannamótinu á dögunum, í undanúrslitum. Kristján Þór komst í forystu strax á annarri holu og lét hana aldrei af hendi, þó svo að Haraldur hafi aldrei leyft honum að stinga af. Hann tryggði sér svo sigurinn á sautjándu holu en Kristján átti möguleika á erni eftir að hafa slegið í stöngin frá teig. Hann endaði með fugl sem Haraldur náði ekki að leika eftir. Kristján Þór hefur farið erfiða leið að úrslitaleiknum en í fjórðungsúrslitum hafði hann betur gegn Birgi Leifi Hafþórssyni, Íslandsmeistaranum í höggleik.Stefán Már Stefánsson, GR og Bjarki Pétursson, GB, eigast við í hinni undanúrslitaviðureigninni í karlaflokki.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira