Graeme McDowell varði titilinn í Frakklandi 8. júlí 2014 21:45 "G-Mac“ hafði ríka ástæðu til þess að fagna um helgina. AP/Getty
Norður-Írinn Graeme McDowell varði titil sinn á Opna franska meistaramótinu í golfi sem fram fór á Le Golf National-vellinum um helgina. Sigur McDowell kom mjög óvænt en fyrir lokadaginn var hann heilum sjö höggum frá Bandaríkjamanninum Kevin Stadler sem hafði verið með hálfgerða yfirburði allt mótið. McDowell lék á 67 höggum á sunnudeginum eða fjórum undir pari en hann endaði mótið samtals á fimm höggum undir pari. Fyrir lokahringinn hafði Stadler þægilega fjögurra högga forystu á næstu menn en hann fann sig alls ekki í rokinu og rigningunni á sunnudeginum og missti forystuna fljótt niður. Hann þrípúttaði svo á 18. flötinni sem tryggði McDowell sigur en hann sigraði einnig á þessu móti í fyrra. Næsta mót á Evrópumótaröðinni er Opna skoska meistaramótið sem fram fer á Royal Aberdeen vellinum en þar á Phil Mickelson titil að verja. Margir af sterkustu kylfingum heims taka þátt í mótinu enda er það góður undirbúningur fyrir Opna breska meistaramótið sem hefst í næstu viku.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira