Eftirkynlífskúr sigga dögg kynfræðingur skrifar 24. júlí 2014 14:00 Kúr getur gert gæfumun fyrir sambandið. Mynd/Getty
Að loknu góðu keleríi er fátt betra en að knúsast smá enda líkaminn fullur af góðum hormónum, þar á meðal hormónið oxýtósin. Oxýtósin er oft kallað „kúruhormónið“ en í kjölfar fullnægingar streymir það um líkamann og því getur bólfélagann (ef viðkomandi er vel fullnægð/-ur) langað að kúra eftir kynlíf, til að styrkja tengslin sem þau upplifa við bólfélagann. Þó er það ekki svo að alla langi til þess að kúra eftir kynlíf, sama hversu vel fullnægð sem þau eru. Sumir fyllast orku og framkvæmdagleði og vilja strax stökkva fram úr rúminu á meðan aðrir breytast í kóalabirni og vilja helst hanga utan á bólfélaganum. Enn aðrir vilja bara snúa sér á hliðina og sofna. Það er ekkert algilt um að konur séu X og karlar Y í þessum málum, einstaklingsmunur er það sem gildir, karlar vilja alveg jafn mikið kúra og konur og konum getur líka langað að snúa sér á hliðina og farið að sofa.Kúr eftir kynlíf getur skilað sér í aukinni ánægju með kynlífi og sambandið.Mynd/GettyHinsvegar bendir ný rannsókn á mikilvægi kúrsins eftir kynlíf, sérstaklega ef þú ert í sambandi. Því meiri tíma sem þú eyðir í kúr að loknu kynlífi (hvort sem það er koddahjal, kúr eða innilega snerting) þeim mun ánægðari ertu með kynlífið ykkar. Þá skipti það engu máli hvort þið eydduð miklum eða litlum tíma í forleik eða eruð almennt knúsinn, það er eftirkynlífsknúsið sem er langmikilvægast. Þegar fólk greinir frá ánægju með kynlífið sitt þá eykst sambandsánægjan samhliða því. Þetta gildir fyrir karla og konur. Með aukinni nánd verður kynlíf ánægjulegra og þið hamingjusamari í sambandinu ykkar. Þannig að, slakaðu á og njóttu. Skapaðu kósí stemmingu, spjallaðu, strjúktu, snertu og jafnvel sturtið ykkur saman eða sofnið.
Heilsa Lífið Mest lesið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið „Samband okkar hefur alltaf verið flókið“ Lífið Ævintýrapar selur fallega fyrstu eign Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Sturla elti Tinder-ástina til paradísarstrandar í Mexíkó Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Sýnir vonandi öðrum konum að lífið er ekki búið eftir þrítugt Lífið