Drukkinn trukkabílstjóri Finnur Thorlacius skrifar 5. ágúst 2014 13:30
Bílstjóri á stórum flutningabíl sem flutti nokkra glænýja Ford bíla á milli staða í Hvíta-Rússlandi taldi það bestu aðferðina til að drepa tímann á leið sinni að drekka ógn og býsn af vodka og varð ökulagið eftir því. Það fannst hvorki lögreglunni né öðrum vegfarendum sniðugt og upphófst mikil eftirför til að stöðva hann. Bílstjórinn kófdrukkni lét alls ekki segjast við ljós og sírenur lögreglubíla heldur jók frekar ferðina og ekki skánaði aksturinn við það. Lögreglan varð þá að grípa til þess ráðs að skjóta á dekk flutningabílsins. Ekki dugði það til heldur urðu þeir að skjóta á eldsneytistank bílsins líka og bíða þess að eldneytið tæmdist af bílnum, að sögn Intex-Press, fréttamiðils í Hvíta-Rússlandi. Lögreglan skaut einum 80 skotum að bílnum. Magnað er að fylgjast með för þessa stórundarlega bílstjóra í myndskeiðinu hér að ofan, en honum er ekki beint umhugað um aðra vegfarendur og nær meðal annars að moka einum bíl útaf veginum. Flestir aðrir ökumenn höfðu vit á því að aka útaf veginum til að forðast það að verða fyrir geggjuðum bílstjóranum og sem betur fer er mikið pláss við hlið vegarins til að víkja. Bílstjórinn var að sjálfsögðu handtekinn og bíður nú dóms, sem líklega verður ekki vægur.
Mest lesið Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Innlent Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Erlent Hefur ekki hugmynd um hve margir telji sig eiga bókun Innlent Alvarleg mistök við vistun barna í Reykjanesbæ Innlent Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Erlent Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Innlent Deila um hjartastopp endaði með tugmilljóna bótum Innlent Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Innlent Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Erlent Heuermann sagður ætla að játa Erlent