Fimm íslensk mörk í ævintýralegum leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2014 17:57 Viðar Örn hefur farið hamförum í norsku deildinni. Heimasíða Vålerenga
Viðar Örn Kjartansson heldur áfram að fara á kostum í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Selfyssingurinn skoraði þrennu þegar Vålerenga og Viking skildu jöfn í ævintýralegum leik á Viking Stadion. Hann er langmarkahæstur í deildinni með 18 mörk í jafnmörgum leikjum. Fimm Íslendingar voru í byrjunarliði Vikings í dag; Sverrir Ingi Ingason, Indriði Sigurðsson, Björn Daníel Sverrisson, Jón Daði Böðvarsson og Steinþór Freyr Þorsteinsson, en þeir áttu heldur betur eftir að koma við sögu líkt og landi þeirra.Simon Larsen kom Vålerenga yfir á 9. mínútu og Viðar bætti svo við marki hálftíma seinna. Indriði sá hins vegar til þess að staðan væri 1-2 í hálfleik þegar hann skoraði á 44. mínútu. Senegalinn El Hadji Makhtar Thiouné jafnaði metin á 57. mínútu, en þá var röðin komin að Vålerenga. Viðar kom gestunum yfir á nýjan leik með marki á 61. mínútu og aðeins fimm mínútum bætti síðar bætti Ghayas Zahid fjórða markinu við. Viðar var ekki hættur og hann fullkomnaði þrennuna á 68. mínútu. Vålerenga skoraði því þrjú mörk á sjö mínútna kafla. En þá sögðu heimamenn hingað og ekki lengra.Niklas Gunnarsson minnkaði muninn á 75. mínútu og níu mínútum síðar breytti Vidar Nisja stöðunni í 4-5. Það var síðan Björn Daníel sem tryggði Viking eitt stig með marki á lokamínútunni. Lokastaðan 5-5 í ótrúlegum leik. Fyrr í dag gerðu Strømsgodset og Sogndal 1-1 jafntefli. Belginn Marvin Ogunjimi kom Strømsgodset yfir á 11. mínútu, en Tom Söderberg jafnaði metin sex mínútum fyrir leikslok.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Rodri ekki meira með KA í ár Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut City að vinna United í slagnum um Anderson Sjá meira