Villegas hafði sigur á Wyndham meistaramótinu 17. ágúst 2014 23:35 Villegas lék frábært golf á lokahringnum. AP/Getty
Kólumbíumaðurinn Camilo Villegas sigraði á Wyndham meistaramótinu sem kláraðist í kvöld en hann lék hringina fjóra á Sedgefield vellinum á samtals 17 höggum undir pari. Lykillinn að sigrinum hjá Villegas var frábær lokahringur upp á 63 högg eða sjö undir en þetta er í fjórða sinn sem hann sigrar í móti á PGA-mótaröðinni á ferlinum. Lokahringurinn var mjög spennandi en margir kylfingar voru í baráttu um sigurinn allt fram á lokaholurnar.Freddie Jacobson og Bill Haas deildu öðru sætinu á 16 höggum undir pari en Heath Slocum endaði einn í fjórða sæti á 15 undir.Nick Watney, sem leiddi fyrir lokahringinn, fann sig ekki í dag og kom inn á 70 höggum eða pari. Hann endaði mótið á 14 undir og þurfti að sætta sig við fimmta sætið ásamt Brandt Snedeker og Webb Simpson. Næsta mót á PGA-mótaröðinni er Barclays mótið en það er fyrsti liður af fjórum í Fed-Ex bikarnum. Þar mæta 125 stigahæstu kylfingarnir á PGA-mótaröðinni til leiks og berjast um gríðarlega háar fjárhæðir en spennandi verður að sjá hvort að einhver nær að skáka Rory McIlroy sem hefur verið sjóðandi heitur að undanförnu.
Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira