Ragnar Már í öðru sæti í Hollandi Anton Ingi Leifsson skrifar 17. ágúst 2014 06:00 Vísir/Kylfingur.is
Ungir íslenskir golfarar eru að gera það gott á áhugamannamóti í Hollandi þessa daganna, en alls eru fimm íslenskir golfararar á mótinu.Ragnar Már Garðarsson úr GKG hefur spilað best af Íslendingunum, en hann er í öðru sæti, einu höggi á eftir Hollendingnum, Lars van Meijel sem er í efsta sætinu. Ragnar Már er ekki einn í öðru sætinu því Rowin Caron frá Hollandi er einnig á samtals sex höggum undir pari.Bjarki Pétursson úr GB er í fjórða sæti einu höggi á eftir Ragnari og Rowin og Gísli Sveinbergsson, GK, er ekki langt undan, en Gísli er samtals á tveimur undir pari.Ísak Jasonarson, GK, hefur oft spilað betur, en hann hefur spilað á 82 og 91 höggum og rekur lestina. Í kvennaflokki eiga Íslendingar einn keppanda, en það er Ásta Birna Magnúsdóttir sem spilar fyrir golfklúbb í Þýskalandi. Hún er í 25. sæti, en hún hefur leikið á 76 og 83 höggum. Upplýsingar eru fengnar frá kylfingur.is.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira