Margir í toppbaráttunni á Wyndham meistaramótinu 16. ágúst 2014 10:12 Scott Langley hefur leikið vel hingað til. AP/Getty
Það er mikil spenna á Windham meistaramótinu sem fram fer á Sedgefield vellinum en þegar að mótið er hálfnað eru 15 kylfingar á átta höggum undir pari eða betur.Heath Slocum og Scott Langley hafa leikið best og deila fyrsta sætinu á 10 höggum undir pari. Nokkrir kylfingar eru á níu höggum undir og enn fleiri á átta undir og því margir nálægt toppbaráttunni. Þrátt fyrir að nokkrir sterkir kylfingar taki sér frí um helgina stefnir allt í mjög spennandi mót enda eru stig í boði sem gilda í Fed-Ex bikarnum sem hefst í næstu viku. Þar leika 125 stigahæstu kylfingar PGA-mótaraðarinnar upp á gríðarlega háar fjárhæðir en fyrsta mótið í Fed-Ex bikarnum er Barclays meistaramótið. Sedgefield völlurinn hefur hingað til boðið upp á góðar aðstæður til þess að skora vel en niðurskurðurinn miðaðist við tvö högg undir pari. Mótið er að sjálfsögðu sýnt á Golfstöðinni og hefst bein útsending í kvöld klukkan 17:00.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira