Það er mikilvægt að brjóta upp staðalímyndir tengdum líkamsímyndum því alltof margir rogast með skömm um líkama sinn og eyða miklum tíma og orku í að líða illa útaf lögun hans.
Rannsóknir hafa sýnt að fólk hefur óraunhæfa mynd af líkama sínum og meta hann oftar sem stærri heldur en raunverulega er. Lykilinn í þessu er að skynjun okkar á líkamanum er brengluð og má það meðal annars skýra af því sem oft ber fyrir augu, svo kallaðir „fullkomnir“ líkamar. Margir venja sig á að tala illa um sjálfa sig og sjá bara „gallana“ í speglinum en ekki fegurðina sem aðrir sjá.

Næst þegar einhver hrósar þér, segðu þá takk.
Ekkert meira, ekkert minna, bara takk. Æfðu þig í að einblína á það sem þér þykir fallegt í fari þínu og ef þú finnur ekki neitt, hlustaði þá á hrósin. Það er hægt að temja sér jákvæða líkamsímynd.
Það má ekki gleyma því að líkamslögun fylgir tískubylgjum og að lögun líkamans stýrir ekki hvernig manneskjan er eða persónuleika hennar.
Með því að birta oftar myndi af allskonar líkömum getum við smátt og smátt síað inn annað fegurðarviðmið og vonandi breytt okkar eigin sýn á okkur sjálfum.
