Berggangurinn 4 kílómetrar á hæð Svavar Hávarðsson skrifar 22. ágúst 2014 14:19
Mælingar vísindamanna sýna að 25 kílómetra langur berggangur hefur myndast undir Dyngjujökli þar sem kvikan úr kvikuhólfinu undir Bárðarbungu er að troða sér í gegn. Berggangurinn er allt að fjórir kílómetrar á hæð, en hins vegar ekki nema um einn metri á breidd. Aflögunarmælingar (GPS) og gögn frá jarðskjálftamælum hafa dregið upp mynd af þeim átökum sem eiga sér stað neðanjarðar undir Bárðarbungu og Dyngjujökli, en upplýsingarnar komu fram eftir fund vísindaráðs Almannavarna í gær. Berggangur, 25 kílómetrar að lengd, hefur myndast undir jöklinum á fimm til 10 kílómetra dýpi. Mælingar í gær sýndu að norðausturendi berggangsins er að víkka, en gangurinn hafði þá lítið lengst undanfarinn sólarhring. Þrír jarðskjálftar mældust hins vegar í öskju Bárðarbungu í gær sem allir voru þrjú til fjögur stig að styrk. Er sú kenning uppi að þessir hörðu skjálftar, sem eru á mun minna dýpi en þeir sem mælast undir Dyngjujökli, stafi af því að þegar kvikan flæðir úr kvikuhólfinu undir eldfjallinu þá sígur askjan og veldur stórum jarðskjálftum. Erfitt er fyrir leikmenn að ímynda sér þá krafta sem hafa valdið þúsundum jarðskjálfta undir og við Vatnajökul síðan á laugardag. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, útskýrir að eitthvað verði undan að láta þegar allt að 100 milljónir rúmmetra af kviku þröngva sér út úr kvikuhólfi Bárðarbungu. „Við vitum að berggangurinn er 25 kílómetrar á lengd og miðað við þetta magn kviku þá þarf berggangurinn ekki að vera breiðari en einn metri eða svo, en hann er um fjórir kílómetrar á hæðina, og er á sex til tíu kílómetra dýpi. Ég set þetta fram án ábyrgðar en þetta ætti að gefa fólki glögga mynd af því hvað gæti verið þarna á ferðinni,“ segir Magnús Tumi en þetta skýrir dýpið sem jarðskjálftavirknin er á. Eins kom fram í gær að skjálftavirknin í Bárðarbungu sýnir engin merki um að það dragi úr umbrotunum, en því til viðbótar að ekkert bendir til þess að virknin sé að færast nær yfirborði.Ekkert einsdæmi Þótt hræringarnar í Vatnajökli nú séu stór viðburður, þá er hann fjarri því að vera einstakur hvað varðar virkni eða tímalengd. Magnús Tumi rifjar upp að ekki þarf að fara lengra aftur en til áranna sem Kröflueldar voru uppi. Ágætt sé að horfa til þeirra nú í þessu samhengi. Fyrsta jarðskjálftahrinan við upphaf Kröfluelda stóð yfir frá desember 1975 fram í mars 1976, og þá var óróinn bæði stöðugur og mikill og fannst hann víða um land. Þessu fylgdi smá spýja, eldgos á stuttri sprungu og var lokið innan tveggja sólarhringa. Hins vegar hélt skjálftavirknin áfram og var mikil og olli fólki óþægindum. Eins og þekkt er reið Kópaskersskjálftinn yfir 13. janúar 1976 og var hluti þessarar ókyrrðar. Land seig um tvo metra við Kröflu á þessum tíma. Þetta var stærsta jarðskjálftahrinan í Kröflueldum, en aðeins fylgdi henni lítið gos. „Þarna var á ferðinni jafn mikið af kviku eða meira, heldur en núna. Svona mikil kvika á ferðinni er ekkert endilega ávísun á að það verði eldgos, hvað þá stórt eldgos. Mikið af þessari kviku á ekki eftir að koma upp þó að gjósi. Hvort við erum að sjá atburðarás sem á eftir að standa í nokkur ár eða einfaldlega klárast núna og bæri ekki á sér næstu ár eða áratugi, það vitum við ekkert um,“ segir Magnús Tumi. Hann nefnir til viðbótar að vikur liðu með stöðugum jarðskjálfum áður en gaus á Fimmvörðuhálsi, og síðar í Eyjafjallajökli.SIF Flogið var yfir svæðið við Bárðarbungu á flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, á miðvikudag, en hún er búin sértækum búnaði til rannsókna og eftirlits með breytingum á jöklinum, og vöktunar á flóðum. Hins vegar var vélin kölluð til landsins frá verkefnum á Miðjarðarhafi nokkru eftir að óróinn hófst. Magnús Tumi segir að engar upplýsingar hafi tapast þótt vélin hafi verið fjarverandi fyrstu dagana, en að sama skapi gríðarlega mikilvægt að hún sé til staðar ef umbrotin verða til þess að gos hefst í jöklinum.
Bárðarbunga Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Fleiri fréttir Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Sjá meira