Russell Henley efstur fyrir lokahringinn í Boston 31. ágúst 2014 21:59 Russell Henley hefur verið í stuði í Boston. AP/Getty
Bandaríkjamaðurinn ungi, Russell Henley, leiðir á Deutsche Bank Championship fyrir lokahringinn en hann hefur leikið fyrstu þrjá hringina á TPC Boston vellinum á samtals 12 höggum undir pari. Í öðru sæti er Billy Horschel á 11 höggum undir pari en Chris Kirk, Jason Day og Rory McIlroy deila þriðja sætinu á 10 höggum undir pari. Kirk og McIlroy voru töluvert frá efstu mönnum fyrir hringinn í dag en þeir léku saman í ráshóp. Þeir fóru báðir á kostum og komu inn á 64 höggum eða sjö undir pari og flugu því upp skortöfluna. Nokkrir þekktir kylfingar eru þá ekki langt frá efstu mönnum fyrir lokahringinn en þar má nefna Webb Simpson á níu höggum undir, Keegan Bradley á átta undir og ungstirnin Rickie Fowler og Jordan Spieth á sjö höggum undir pari. Lokahringurinn á Deutsche Bank Championship lofar því góðu en hann verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00 á morgun.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira