Í kjölfarið kom listi frá konunni þar sem hún útskýrði nánar af hverju kynlíf hefði ekki átt sér stað.
Þegar talað er um kynlífslista þá er hægt að ræða um það út frá ýmsum hliðum.

Þessir listar geta verið ansi frumlegir (og stundum kjánalegir) og innihalda oftar en ekki lýsingar á frumlegum stellingum, kynlífi með fleiri en einum einstakling í einu eða á exótískum stað.
Sum pör búa sér til slíka lista en ætla þá sé ekki vissara að fara varlega í sakirnar ef fantasían af listanum inniheldur ekki bólfélagann.
Annars getur þetta verið góð leið til að ræða fantasíuna sína og skemmtileg markmiðssetning til að krydda kynlífið.
Þá eru til listar sem innihalda upptalningu fyrrum bólfélaga. Ætli slíkir listar hverfi ekki oft þegar fólk er komið í samband þar sem umræðan um fyrrum bólfélaga getur verið eitruð fyrir marga.
Svo eru það þeir sem gera lista yfir frægt fólk sem því langar að stunda kynlíf með. Þessir listar verða hjá sumum einhvers konar undartekningar ákvæði á framhjáhald. Þannig að ef þú rekst á frægu manneskjuna sem er á þínum kynlífslista þá máttu stunda kynlíf með viðkomandi.
Hvort einhver hafi svo raunverulega lent í þessu og hvort makinn hafi tekið það gott og gilt er svo önnur saga
Þessar samræður geta einnig verið gott krydd í kynlífi en farið varlega þegar talið um aðra einstaklinga utan sambands og kynlöngun því einhverjir gætu orðið afbrýðissamir.