Birgi Leif fataðist flugið undir lokin Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 13. september 2014 13:59 Birgir Leifur á Íslandsmótinu í sumar vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson Íslandsmeistari í golfi er í fimmta sæti á Haverdal Open á Noreda mótaröðinni í Svíþjóð eftir þrjá hringi. Birgir var um tíma í efsta sæti í dag en fataðist flugið undir lokin. Birgir Leifur fór frábærlega af stað í morgun og kominn í efsta sætið eftir sjö holur en hann lék þær á fimm undir pari en þá missti hann hausinn. Birgir Leifur fékk tvöfaldan skolla á 8. holunni og par á níundu og var því þremur undir eftir níu holur. Á seinni níu fékk Birgir fimm skolla, einn fugl og þrjú pör og lauk því leik á 73 höggum eða einu yfir pari. Hann féll því niður í fimmta sætið og er átta höggum á eftir efsta manni þegar einn hringur er óleikinn.Ólafur Björn Loftsson lék einnig á mótinu en hann var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira