
5 leiðir til þess að ná stjórn á sykurlöngun

Hér koma fimm ráð sem geta hjálpað til í baráttunni við sykurpúkann.
1. Borðaðu próteinríkan morgunverð
Byrjaðu daginn á hollum og próteinríkum morgunverði. Það getur hjálpað til við að halda blóðsykrinum í jafnvægi yfir daginn.
2. Borðaðu reglulega og fáðu holla fitu úr matnum
Það er mikilvægt að verða aldrei of svangur, þá getur komið ójafnvægi á blóðsykurinn og þá er líklegra að við grípum í einhverja óhollustu. Borðaðu reglulega yfir daginn og borðaðu hollar fitusýrur. Holl fita hjálpar okkur að finnast við vera södd og þá leitum við síður í sætindi.
3. Slepptu gervisætunni
Jafnvel þó að gervisæta innihaldi engar kaloríur þá sýndi rannsókn frá Yale að vissar tegundir gervisætu geti aukið sykurlöngun hjá fólki. Gervisæta er þar að auki jafnvel óhollari en venjulegur sykur.
4. Fáðu nægan vökva
Stundum höldum við að við séum svöng þegar við erum í raun bara þyrst. Vökvatap stuðlar að líkamlegri vanlíðan og það er mikilvægt fyrir alla starfsemi líkamans að fá nægilegan vökva. Reyndu að drekka að minnsta kosti 8 vatnsglös á dag.
5. Prófaðu þig áfram með önnur krydd
Maturinn þarf ekki að vera bragðlaus þó að við sleppum sykrinum. Kanill er til dæmis frábær til þess að fá aðeins sætt bragð út á morgungrautinn og minta er mjög bragðgóð út í morgundjúsinn.
Heilsuvísir vill verðlauna þig Við á Heilsuvísi viljum hvetja þig til góðra verka og drögum út heilsutengda vinninga vikulega í september. Vertu með á Facebook og Instagram og hastaggaðu #Heilsuvísir #sykurlausseptember. Myndirnar geta verið af hvatningarorðum, drykkjum, sykurlausum mataruppskriftum, sætum bitum án sykurs, fyrirmyndum og öllu sem að tengist ferðalagi þínu í sykurlausum september.
Tengdar fréttir

Sykurlaus september - ertu með?
Við á Heilsuvísi viljum stuðla að bættri heilsu og betra líferni og skorum á þig að taka þátt í Sykurlausum september.

Notkun gervisykurs jafnvel hætt hjá Mjólkursamsölunni
Ný rannsókn bendir til brenglaðs sykurþols vegna neyslu á gervisykri. Vöruþróunarstjóri MS segir að boðið hafi verið upp á mjólkurvörur með gervisykri sem valkost. Alltaf sé litið til Matvælaöryggisstofnunar Evrópu.

Um gervisykur
Það hljómar afskaplega vel í margra eyrum að geta gætt sér á einhverju sem bragðast eins og sykur en er ekki stút- fullt af hitaeiningum.

Hentu hvíta sykrinum út og notaðu stevíu í staðinn
Stevía er hollari kostur í bakstur og eldamennsku

Þetta er það sem gerist í heilanum á þér þegar þú borðar sykur.
Dr. Nicole Avena setti saman skemmtilegt myndband sem sýnir þér á einfaldan hátt hvað gerist þegar þú borðar mikinn sykur.

Hin mörgu andlit sykurs
Sykur er góður, já við vitum það, en hann gefur líka fallega áferð, meiri fyllingu í matinn og sælutilfinningu eftir átið. Er það ekki hin fullkomna samsetning, ekki satt? Jú, því miður er það alveg hárrétt.

6 matartegundir með földum sykri
6 vinsælar matartegundir sem margir borða reglulega án þess að gera sér grein fyrir hversu mikið magn sykurs þeir eru að innbyrða.

Dásamleg sykurlaus hindberja jógúrt
Einföld uppskrift af sykurlausri jógúrt með stevíu sem er frábær sem morgunverður eða millimál.