Ben Martin í góðum málum fyrir lokahringinn á TPC Summerlin 19. október 2014 12:50 Ben Martin var í stuði í gær. AP
Ben Martin leiðir fyrir lokahringinn á Shriners mótinu sem fram fer í Las Vegas en hann er á 17 höggum undir pari eftir fyrstu þrjá hringina. Martin fór á kostum á þriðja hring í gær á TPC Summerlin vellinum en hann fékk tíu fugla og kom inn á 62 höggum eða níu undir pari. Í öðru sæti er Russell Knox frá Skotlandi á 15 höggum undir pari en Andrew Svoboda og Jimmy Walker, sem lék einnig frábært golf í gær, deila þriðja sætinu á 13 höggum undir pari.Webb Simpson, sem sigraði í mótinu á síðasta ári, hefur varið titil sinn vel en hann er á 12 höggum undir pari og gæti með góðum lokahring blandað sér í baráttuna um sigurinn. Athyglisvert verður að sjá hvort að Ben Martin stenst pressuna sem fylgir því að leiða mót á PGA-mótaröðinni fyrir lokahringinn en bein útsending frá TPC Summerlin verður á Golfstöðinni frá klukkan 21:00 í kvöld.
Golf Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira