Tíska og hönnun

Haustförðun sem allir geta gert

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Förðunarfræðingurinn Tara Brekkan Pétursdóttir birtir skemmtilegt kennslumyndband á YouTube-síðu sinni þar sem hún fer í gegnum einfalda en fallega haustförðun frá A til Ö.

Í myndbandinu vinnur hún með matta tóna og sýnir nýja tækni við að skygga húðina. Haustförðunin sem Tara sýnir getur bæði gengið dagsdaglega í vinnunni eða skóla eða þegar á að lyfta sér upp. 

Tara útskrifaðist úr tísku- og ljósmyndaförðun frá Snyrtiakademíunni árið 2010 og hefur tekið að sér að farða fyrir ýmsa stóra viðburði, svo sem tískusýningar og Ungfrú Ísland. Þá tekur hún einnig að sér smærri verkefni og getur einnig gert einfaldar hárgreiðslur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.