Pálmi með þrennu fyrir Lilleström Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 26. október 2014 19:12 Pálmi fór á kostum í dag vísir/valli
Pálmi Rafn Pálmason stal senunni í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar hann skoraði þrennu fyrir Lilleström sem lagði Start 4-1. Pálmi skoraði bæði mörk Lilleström sem var 2-0 yfir í fyrri hálfleik en hann fullkomnaði þrennuna þegar hann skoraði á ný rétt rúmum 20 mínútum fyrir leikslok en skömmu síðar minnkaði Start muninn.Guðmundur Kristjánsson lék allan leikinn fyrir Start og Matthías Vilhjálmsson lék fyrstu 76 mínúturnar. Lilleström er í 5. sæti deildarinnar með 43 stig þegar tvær umferðir eru eftir og Start er í 10. sæti með 34 stig.Sverrir Ingi Ingason skoraði fyrir Viking sem tapaði 2-1 fyrir Aalesund á heimavelli. Sverrir minnkaði muninn tíu mínútum fyrir leikslok. Viking er í 11. sæti með 33 stig en Aalesund lyfti sér upp í níunda sætið með 35 stig.Hjörtur Logi Valgarðsson lék allan leikinn fyrir Sogndal sem tapaði 1-0 á heimavelli fyrir meisturum Molde. Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður stundarfjórðungi fyrir leikslok hjá Molde. Sogndal er í 14. sæti með 24 stig í bullandi fallbaráttu. Molde hefur þegar tryggt sér norska meistaratitilinn.Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn fyrir Sarpsborg 08 sem gerði 1-1 jafntefli við Stabæk. Sarpsborg er í sjöunda sæti með 37 stig. Stabæk er stigi neðar með stigi minna.Hjálmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í vörn Rosenborg sem lagði Sandnes Ulf 3-1. Hannes Þór Halldórsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson léku allan leikinn fyrir Sandnes sem er á botni deildarinnar með 21 stig. Rosenborg er í 3. sæti með 54 stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Fleiri fréttir „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Sjá meira