Enginn veit hvað er að Eyjólfi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2014 08:30 Mynd/Heimasíða Midtjylland
Knattspyrnumaðurinn Eyjólfur Héðinsson hefur ekki átt sjö dagana sæla síðustu tvo ár en miðjumaðurinn úr Breiðholtinu hefur glímt við nárameiðsli þennan tíma og nánast ekkert getað spilað með liðið Midtjylland sem er nú á toppi dönsku deildarinnar. „Ég er búinn að vera meiddur í tvö, meira eða minna og það gengur ekkert að finna út úr þessum meiðslum," sagði Eyjólfur í viðtali við Sindra Sverrisson í Morgunblaðinu í dag. „Ég er búinn að vera meiddur í náranum og með sömu einkenni allan þennan tíma. Ég er búinn að fara í tvær aðgerðir, hitta fullt af sérfræðingum, sjúkraþjálfurum og kírópraktorum og það klóra sér bara allir í hausnum," sagði Eyjólfur ennfremur í viðtalinu en hann á eftir rúmt ár af samningi sínum við Midtjylland. Eyjólfur hefur leitað til sérfræðinga í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi. „Ég er ekki alveg búinn að gefast upp. Við erum alltaf að prófa nýjar aðferðir og við skulum sjá hverju sú nýjasta skilar," sagði Eyjólfur og talar um mikinn tilfinningarússíbana þegar ný aðgerð eða nýr læknir sem átti að bjarga öllu nær ekki þeim árangri sem hann vonaðist til. Midtjylland er á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar með sjö stiga forskot á Randers og FCK en Eyjólfur hefur ekkert verið með á þessu tímabili. Eyjólfur tók þátt í 10 af 33 leikjum á síðasta tímabili og skoraði 2 mörk á þeim 292 mínútum sem hann spilaði. Eyjólfur var þá í byrjunarliðinu í tveimur leikjum síðast á móti Vestsjaelland 7. október 2013 en hann skoraði þá í 2-2 jafntefli.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Körfubolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Sjá meira